Fara í efni

Bjútítips sem allar konur yfir 30 ættu að kunna

Fegurð - 4. febrúar 2021

Förðunarfræðingur HÉR ER fer yfir nokkur grundvallaratriði þegar kemur að förðun.

Ekki vanmeta það hversu mikilvægt er að grunna húðina vel. Þegar við tölum um að grunna meinum við ekki endilega með svokölluðum farðagrunni eða primer. Mikilvægt er að veita húðinni raka áður en farði er borinn á. Þannig fær húðin það sem hún þarfnast, farðinn blandast betur inn og verður eitt með húðinni í stað þess að sitja ofan á svitaholunum.

Mynd: IMAXtree.

Backlight Priming Filter frá Becca gefur húðinni raka og gullfallegan ljóma undir farða. Fæst í Hagkaup, Smáralind.

Notaðu púður í hófi. Við mælum ekki með því að „baka“ með andlitspúðri, ekki nema þú sért að fara að taka þátt í dragkeppni eða þarft að vera á sviði að syngja og dansa tímunum saman. Veldu fínmalað, laust púður og notaðu það sparlega yfir t-svæðið og til að setja hyljarann undir augum.

Lausa púðrið frá Sensai er eitt það allra besta til að setja farða enda mjög fínmalað og inniheldur silki sem gefur húðinni fallega hulu. Fæst í Hagkaup, Smáralind.

Veldu kremaðan hyljara undir augun sem endurkastar ljósi og litaleiðréttir, forðastu „þurrar“ og íþyngjandi formúlur.

Hyljarinn Age Rewind frá Maybelline í litnum Neutralizer litaleiðréttir, hylur vel undir augum og sest ekki í fínar línur. Fæst á góðum prís í Lyfju og Hagkaup, Smáralind.

Veldu vel þegar kemur að snyrtivörum, kauptu frekar nokkrar vörur sem þú veist að klæða þig og kosta örlítið meira en margar ódýrari vörur sem fá enga ást, þá kemurðu út í miklum plús þegar á heildina er litið.

Prófaðu að nota kremaðan kinnalit og highlighter og sjáðu andlitið hreinlega lifna við!

Varastu að teikna augabrúnirnar of dökkar, veldu frekar kaldtóna augabrúnatón í lit sem er örlítið ljósari en hárin sjálf og fylltu léttilega upp í þær og greiddu upp með augabrúnageli. Það gefur andlitinu frísklegt yfirbragð.

Prófaðu að nota sólarpúður einnig sem augnskugga í kringum augun, það stækkar þau og tengir förðunina fallega saman.

Ekki vanmeta varablýant í náttúrulegum nude tón, hann getur stækkað varirnar til muna en þær þynnast náttúrulega með árunum. Passaðu bara upp á litavalið og blandaðu vel.

Liturinn Stunning Nude frá Sensai er fullkominn til að stækka varirnar á náttúrulegan hátt. Fæst í Hagkaup, Smáralind.

Ef þú hefur ekki notað augnhárabrettara til þessa er kominn tími til, hann opnar augnumgjörðina fallega. (Vatnsheldir maskarar eiga það til að halda sveigjunni betur!)

Shiseido-augnhárabrettarinn er alger bestseller. Fæst í Hagkaup, Smáralind. (Þegar hann er ekki uppseldur!)

Fjárfestu í góðum förðunarburstum, þeir þurfa ekki að vera dýrir, einungis vandaðir. Passlegt er að eiga sirka átta bursta fyrir þá sem farða sig daglega. Varastu að nota of stóra bursta, t.d í púður.

Burstarnir frá Real Techniques fá okkar samþykkisstimpil. Fást í Lyfju og Hagkaup, Smáralind.

Ef þú grunnar augnlokin fyrir augnskugga helst hann á fram á rauða nótt. Við mælum með Paint Pot frá MAC í litnum Groundwork fyrir hinn fullkomna skuggalit.

Paint Pot frá MAC í litnum Groundwork. Fæst í MAC, Smáralind.

Passaðu að hylja vel roða í kringum nef og höku, sérstaklega ef þú ætlar að nota rauðan varalit. Við elskum Forever Skin Correct-hyljarann frá Dior.

Einn allra besti hyljari sem við höfum prófað. Dior-vörurnar fást í Hagkaup, Smáralind.

Við mælum eindregið með öllum snyrtivörunum hér að ofan.

Meira úr fegurð

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti

Fegurð

Vetrarsport er innblásturinn af nýrri Winter Glow-línu Chanel

Fegurð

Heitustu förðunar­trendin og spennandi snyrtivörur á afslætti

Fegurð

Heitustu hártrendin 2024

Fegurð

Bestu farðar ársins á 23% afslætti á Áramótabombu

Fegurð

Hugmyndir að dekurjólagjöfum á 20% afslætti

Fegurð

Snyrtivörur sem fengu förðunarfræðinginn okkar til að segja VÁ!

Fegurð

Náttúrulegar gæðavörur sem eru í uppáhaldi hjá Hollywood-stjörnunum