Fara í efni

Prada-skór pikkfastir á óskalistanum

Lífsstíll - 8. júlí 2020

Helgi Ómarsson ber sannarlega marga hatta en hann er meðal annars ljósmyndari, heldur úti hljóðvarpinu Helgaspjallið og er vinsæll bloggari. Hann vinnur einnig fyrir fyrirsætuskrifstofuna Elite Model Management í Danmörku við það að finna ný og fersk andlit. Hann er góðvinur okkar á HÉRER.IS og alltaf til í spjall. Svo er hann líka alltaf svo extra smart sem skemmir ekki fyrir. Gefum Helga orðið.

Þúsundþjalasmiðurinn Helgi Ómarsson.

Hvaða sumartrendum ertu spenntastur fyrir?

Ég persónulega elska það sem er í gangi í tískunni þessa dagana. Stórar og víðar flíkur, 70’s stíll-og litapallettur, það finnst mér mest áberandi. Ég elska bara hvernig það hefur aldrei verið auðveldara að vera „comfy og súper stylish“. 

Hvað er á óskalistanum?

Dior Oblique Jacquard- taska er líklegast efst á óskalistanum. Ég nánast lá á gólfinu í Dior-búðinni í Bangkok, hún var risastór og ekkert smá falleg. Það var smá svona „water water everywhere, not a drop to drink“-augnablik. Hún verður bráðum mín!

Ég hef líka haft augastað á Cloudburst Thunder Sneakers í laaangan tíma, og fór niðrí Prada-búðina þegar ég var búinn að safna mér þægilega fyrir þeim og þá voru þeir uppseldir og framleiðslan alveg stopp útaf ástandinu á Ítalíu. Ég gat ekki einu sinni farið í fýlu! En ég sit eftir með smá svona tilfinningu að geta ekki fengið eitthvað sem mig langar í. Lúxusvandamál og ég þarf þá svo sannarlega ekki. En þeir eru pikkfastir á óskalistanum samt.

Morgan-sólgleraugun frá Tom Ford hafa vermt óskalistann minn síðan ég prófaði þau rétt áður en ég fór til Bali árið 2018. Ég ákvað að kaupa þau ekki en sé enn eftir því í dag. Ég er samt svo mikið týpan sem sest ofan á sólgleraugun sín eða eitthvað! (Tom Ford-sólgleraugu fást í Optical Studio, Smáralind.)

Mig langar alveg ógeðslega mikið í rafmagnshlaupahjól, ég veit ekki almennilega afhverju en það er svo þægilegt að stökkva á svona hlaupahjól í Kaupmannahöfn. Síminn, 79.990 kr.

Sapiens – A Brief History Of Humankind er eitthvað svo geggjuð bók. Ég er reyndar ekki búinn með hana, er frekar hægur lesari. En í hvert skipti sem ég les í henni kafla eða legg hana frá mér, þá er ég að hugsa um það sem ég var að lesa. Ég elska það. Mæli hiklaust með! Annars mæli ég að sjálfssögðu líka með því að styðja íslenska rithöfunda. Penninn Eymundsson, 2.999 kr.

Hvað er möst fyrir strákana að eiga í fataskápnum núna?

Víðar eða beinar buxur sem passa vel og maður elskar. Það er kúnst ef þú spyrð mig. Tvo solid, góða og fallega hvíta boli, það er líka kúnst að finna svoleiðis. Hettupeysa er möst, sumarskyrta og einhverjir strigaskór sem þú gjörsamlega elskar. Og, já-jakka- helst 20 jakka. En samt ekki taka því ráði frá mér, því tveir eru nóg. Eða sex. En jakkar eru mitt uppáhalds. Mun líklega aldrei telja mig eiga nóg. Það er ekki eðlilegt, svo enn og aftur, ekki taka þessu ráði!

Hvað er besta ráðið sem þú hefur fengið?

Að aldrei eyða orku í eitthvað sem þú getur ekki stjórnað. spáið í þessu niðrí merg. Geturu stjórnað útkomunni? Frábært. Do it. En er ekkert sem þú getur gert í aðstæðunum? Ekki séns og ekki í boði að eyða dýrmætri orku í það. Þetta frelsar mann algjörlega. Þetta dekkar líka svo margt í okkar lífi og leyfir okkur bara að gera okkar besta og svo getur maður sleppt takinu.

Hvert er lífsmottóið þitt?

Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Klisja, en svona breytum við heiminum til hins betra. 

Hvað er framundan?

Það er margt spennandi framundan og ég get ekki lýst því hvað ég er glaður að vera kominn aftur í gang eftir að hafa verið á bakvið lás og slá í Danmörku. Kannski smá dramatískt, en ég var fastur inní Kaupmannahöfn. Sem hljómar kannski flippað en var ekkert svo flippað. Ég er svo þakklátur að það sé búið að opna Ísland því hér er helmingurinn af vinnunni minni. Ég er að byggja upp fyrirtækið mitt og halda áfram að Helgaspjallast og vinna með fáranlega góðu og skemmtilegu fólki. (Við mælum að sjálfsögðu með því að fólk kynni sér podcastið Helgaspjallið.)

Meira úr lífsstíl

Lífsstíll

Óskalisti stílista á afslætti á Dekurkvöldi

Lífsstíll

Valentínusar­dagurinn nálgast

Lífsstíll

Ættum við að bæta kollageni inn í rútínuna okkar?

Lífsstíll

Rakel María þjálfari gefur góð heilsuráð

Lífsstíll

Helga Magga næringarþjálfari deilir hollum og góðum uppskriftum

Lífsstíll

Magnaður snjallhringur kominn á markað

Lífsstíll

Góð ráð til að ná úr sér janúar sleninu

Lífsstíll

Jólagjafa­hugmyndir Rakelar Maríu