Línan á að minna okkur á tilfinninguna að liggja úti á túni og njóta villtrar náttúrunnar allt í kring.
Fjórir ungir hönnuðir H&M eru snillingarnir á bakvið línuna en mynstrið er handmálað með vatnslitum og flíkurnar eru úr lífrænu bómullarefni. Markmiðið er að skapa þá tilfinningu að geta tengst náttúrunni sama hvar maður er.
Bakhlutinn á kjólunum er ekki síður fallegur.
Okkar uppáhöld
Hér eru þær flíkur sem okkur þykja fallegastar úr A Meadow Of Wildflowers-línunni en kjólarnir eru hver öðrum fallegri. Hugsanlega eru þó síðerma kjólarnir hentugri fyrir íslenska sumarið.
A Meadow Of Wildflowers-línan er væntanleg í flagship-verslun H&M í Smáralind.