Fara í efni

Af hverju serum?

Fegurð - 5. mars 2021

Flestir hafa heyrt um serum en eru mögulega óvissir hvernig á að nota það eða til hvers það er yfir höfuð. Hér ljóstrum við upp um hina margvíslegu leyndardóma serumsins og mælum með nokkrum af þeim bestu í bransanum.

Serum inniheldur oftast formúlu með virkum innihaldsefnum sem eru þá í meira magni en í kremum. Oft er hægt að velja serum sem er með sambærilega formúlu og dag- eða næturkremið þitt en svo er líka hægt að leita að serumi sem inniheldur ákveðið efni sem þú sækist eftir að bæta við húðrútínuna þína.

Formúla seruma er þannig uppsett að hún fer djúpt inn í húðina og stuðlar þar með að betri virkni innihaldsefnanna.

La Roche-Posay vörurnar eru þróaðar, prófaðar og fá meðmæli frá húðlæknum um allan heim. Einkunnarorð merkisins eru betra líf fyrir viðkvæma húð. Vörurnar fást eingöngu í apótekum og úrvalið má t.d. skoða hér.

Serum sem við mælum með!

Hér eru nokkur með mismunandi virkni sem við gefum okkar bestu meðmæli.


HyaluB5 Serum

Rakabomba af bestu gerð.

Formúla serumsins er rík af Hyalruonic Acid eða hýalúronsýru í tveimur stærðum. Minni stærðin fer djúpt inn í húðina og fyllir hana af raka innan frá. Stærri eindirnar leggjast á yfirborð húðarinnar, gefa henni raka og gera húðina þannig rakamikla og áferðafallega. Kröftugt serum sem djúpnærir húðina og er tilvalið að nota bæði kvölds og morgna. Hýalúronsýru er gott að setja inn í húðrútínuna ef þú ert t.d. að nota sýrur eða Retinol.

Hér er hægt að kaupa vöruna.


Effaclar Anti Imperfections Serum

Bólgu- og bólubani af bestu gerð.

Nýjasta serumið frá La Roche-Posay. Hér er um að ræða serum sem er djúphreinsandi, losar stíflur, dauðar húðfrumur og aðstoðar við endurnýjun húðarinnar og losar hana t.d. við bólgur og bólur. Formúlan inniheldur margar af vinsælustu sýrunum í húðvörum í dag. Glycolic Acid, Salicylic Acid og LHA-sýrur. Effaclar-vörurnar eru hugsaðar fyrir óhreina húð og hjálpa húðinni að losa sig við langvinn óhreinindi. Eftir 30 daga er sýnilegur munur á bólum og bólgum í húðinni. 

Þetta serum má nota bæði kvölds og morgna en það er nauðsynlegt að nota sólarvörn eða húðvörn öllu heldur á hverjum degi á meðan verið er að nota sýrur í húðrútínunni.



Toleriane Ultra Dermallergo Serum

Vörulína þróuð fyrir ofnæmiseinkenni í húðinni.

Þar sem húðvörulína La Roche-Posay í heild snýst um að viðkvæm húð fái betra líf og betri líðan þá einblínir merkið m.a. á það að aðstoða húð sem þjáist til dæmis af ofnæmi. Húðofnæmi eru algeng og Toleriane Ultra-vörurnar eru sérstaklega þróaðar fyrir ofnæmiseinkenni en þær innihalda efni sem heitir Neurosensine sem róar húðina samstundis og dregur úr pirringi og óþægindum svo húðin slakar betur á. 

Serumið sem er nýtt í línunni inniheldur mesta magnið af þessu fyrrnefnda innihaldsefni sem fer djúpt inn í húðina og róar uppþot sem getur átt sér stað á meðan bólgur og erting af völdum ofnæmis eru viðvarandi í húðinni. Næst þegar þú átt leið í apótek til að skoða ofnæmislyf hvetjum við þig til að skoða húðvörurnar frá La Roche-Posay.

Sjáumst í Lyfju í Smáralind!

Meira úr fegurð

Fegurð

Vetrarsport er innblásturinn af nýrri Winter Glow-línu Chanel

Fegurð

Heitustu förðunar­trendin og spennandi snyrtivörur á afslætti

Fegurð

Heitustu hártrendin 2024

Fegurð

Bestu farðar ársins á 23% afslætti á Áramótabombu

Fegurð

Hugmyndir að dekurjólagjöfum á 20% afslætti

Fegurð

Snyrtivörur sem fengu förðunarfræðinginn okkar til að segja VÁ!

Fegurð

Náttúrulegar gæðavörur sem eru í uppáhaldi hjá Hollywood-stjörnunum

Fegurð

Eitt vinsælasta húðvörumerki heims komið í Lyfju og það er á frábæru verði!