Fara í efni

Húðvörurnar sem franskar konur fá ekki nóg af

Fegurð - 26. nóvember 2020

Nútímatæknin býður upp á ótal möguleika en eitt af því jákvæða við heimsfaraldur er að nú er fólk duglegra við að kynna og nálgast áhugavert efni í beinni útsendingu á Netinu. Klukkan níu í kvöld stendur Lyfja fyrir einni slíkri fræðslu um ný snyrtivörumerki á íslenskum markaði sem leiðir okkur í allan sannleikann um margar vinsælustu snyrtivörur heims, sem franskar konur fá ekki nóg af. Fylgist með!

Franskar konur eru þekktar fyrir að búa yfir allskyns fegurðarleyndarmálum og hver veit nema nokkur þeirra leynist meðal varanna sem eru í boði hjá VICHY og La Roche-Posay. Erna Hrund Hermannsdóttir vörumerkjastjóri og trainer merkjanna á Íslandi ætlar að fræða okkur um þessi nýju vörumerki á íslenskum markaði, uppruna þeirra, vörurnar sjálfar og spennandi innihaldsefnin.

vichy smáralind hér er danól lyfja
Ein af húðvörunum frá VICHY sem fengið hefur einróma lof.

Í dag er mikill áhugi fyrir húðumhirðu almennt en það er mikilvægt að hafa það hugfast að húðrútínan henti þinni húðgerð. Húðlæknar hafa þróað, prófað og mælt með vörum frá VICHY og La Roche-Posay en þau eru meðal mest seldu húðvörumerkja í heiminum og þau sem húðlæknar mæla einna helst með. Vörumerkin eiga það sameiginlegt að fást eingöngu í apótekum.

Smellið hér til að fara á viðburðinn á Netinu sem verður klukkan 9 í kvöld.

hér er smáralind la roche posay vichy lyfja danól húðvörur
Húðvörurnar frá VICHY og La Roche-Posay fást í Lyfju í Smáralind.

Húðlæknar hafa þróað, prófað og mælt með vörum frá VICHY og La Roche-Posay en þau eru meðal mest seldu húðvörumerkja í heiminum og þau sem húðlæknar mæla einna helst með.

Vörurnar eru eingöngu seldar í apótekum og fást í Lyfju í Smáralind.

Meira úr fegurð

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti

Fegurð

Vetrarsport er innblásturinn af nýrri Winter Glow-línu Chanel

Fegurð

Heitustu förðunar­trendin og spennandi snyrtivörur á afslætti

Fegurð

Heitustu hártrendin 2024

Fegurð

Bestu farðar ársins á 23% afslætti á Áramótabombu

Fegurð

Hugmyndir að dekurjólagjöfum á 20% afslætti

Fegurð

Snyrtivörur sem fengu förðunarfræðinginn okkar til að segja VÁ!

Fegurð

Náttúrulegar gæðavörur sem eru í uppáhaldi hjá Hollywood-stjörnunum