Fara í efni

Mest seldi farðinn í Bandaríkjunum loksins fáanlegur á Íslandi!

Fegurð - 11. mars 2021

Í dag er dýrðardagur því snyrtivörurnar frá IT Cosmetics eru loksins fáanlegar á Íslandi! Margir kannast við Your Skin But Better CC-kremið frá vörumerkinu sem hefur verið mest seldi farðinn í Bandaríkjunum. Í dag og á morgun verða kynningardagar í Hagkaup, Smáralind og hægt að gera dúndurgóð kaup á þessum snilldarvörum.

Árið 2008 stofnaði Jamie Kern Lima snyrtivörumerkið IT Cosmetics en hún átti erfitt með að finna förðunarvörur sem huldu rósroða, án þess að vera það þykkar að þær létu hana líta út fyrir að vera tíu árum eldri. Hún lét sig dreyma um að hanna snyrtivörur sem raunverulega virkuðu fyrir alvöru konur og gáfu þeim sjálfsöryggi.

Til að ná þessu markmiði vissi Jamie að það væri mikilvægt að gera hlutina öðruvísi og fékk því teymi húðlækna og lýtalækna í lið með sér. Ólíkt öðrum snyrtivörumerkjum hafa allar förðunarvörur IT Cosmetics húðbætandi eiginleika sem ekki einungis virka samstundis heldur gefa langvarandi árangur. Allar formúlurnar eru rakagefandi, styrkjandi og verndandi og eru því fyrirbyggjandi við ótímabærri öldrun húðarinnar.

Stofnendur merkisins setja vöru ekki á markað fyrr en eftir margra ára rannsóknir og þegar þau hafa staðfest að varan reynist alvöru konum vel um allan heim. Þú þarft ekki að vera snyrti- eða förðunarfræðingur til að nota IT Cosmetics, þú þarft bara að vilja snyrtivörur sem næra, umbreyta og draga fram það fallegasta í þér og þinni húð.

„You are beautiful, you are IT!“

Vinsælustu vörur IT Cosmetics

Margir kannast við farðann Your Skin But Better CC+ en hann er mest seldi farðinn í Bandaríkjunum og ekki að ástæðulausu.

Your Skin But Better hefur farið sigurför um heiminn en farðinn er vel þekjandi og litaleiðréttir, með sólarvörn spf 50 og inniheldur fyrirbyggjandi serum. Formúlan fyllir einnig upp í línur og opnar húðholur. Við segjum fullkomnun í farðatúpu!

Bye Bye Undereye-hyljari

Vel þekjandi hyljarinn verndar viðkvæmt augnsvæðið, dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka og er einnig rakagefandi og vatnsheldur í þokkabót.

Bye Bye Undereye er kremaður, vel þekjandi hyljari sem gott er að nota undir augun en einnig á roða, bólur eða dökka bletti á húðinni.

Bye Bye Pores-púður

Er laust og pressað púður sem er rakagefandi og inniheldur ekta silki þannig að púðrið ýkir ekki línur, opnar húðholur eða þurra húð.

Bye Bye Pores er laust, pressað púður sem setur farðann fallega og sest ekki í fínar línur.

Brow Power-augabrúnablýantur

Er endingargóður augabrúnablýantur sem inniheldur nærandi og styrkjandi eiginleika.

Brow Power er augabrúnablýantur í skrúfblýantaformi með greiðu á öðrum endanum, alveg eins og við viljum hafa þá!

Superhero-maskari

Maskarinn inniheldur nærandi og styrkjandi eiginleika fyrir augnhárin, gefur meiri þéttleika og lengir þau á sama tíma. Greiðir úr hverju augnhári og gerir þau extra þykk og falleg.

Superhero-maskarinn frá IT Cosmetics hefur farið sigurför um heiminn. Nú er hann loksins fáanlegur á Íslandi í Hagkaup, Smáralind.

Confidence In A Cream-andlitskrem

Andlitskrem með ótal eiginleika sem hefur verið mest selda andlitskremið í Bandaríkjunum.

Kremið gefur raka, vinnur á fínum línum, jafnar áferð og litarhaft húðarinnar, dregur úr sýnileika húðhola og þéttir og birtir. Krem sem gerir nánast allt nema að taka úr vél fyrir okkur!

It Cosmetics er til sölu í Hagkaup í Smáralind.

Meira úr fegurð

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti

Fegurð

Vetrarsport er innblásturinn af nýrri Winter Glow-línu Chanel

Fegurð

Heitustu förðunar­trendin og spennandi snyrtivörur á afslætti

Fegurð

Heitustu hártrendin 2024

Fegurð

Bestu farðar ársins á 23% afslætti á Áramótabombu

Fegurð

Hugmyndir að dekurjólagjöfum á 20% afslætti

Fegurð

Snyrtivörur sem fengu förðunarfræðinginn okkar til að segja VÁ!

Fegurð

Náttúrulegar gæðavörur sem eru í uppáhaldi hjá Hollywood-stjörnunum