Fara í efni

Gjafakassi frá Bioeffect í jólapakkann

Fegurð - 21. nóvember 2020

Húðvörurnar frá Bioeffect eru að okkar mati skyldueign enda höfum við séð árangurinn á eigin skinni. Nú fást þær á hagstæðum kjörum í fallegum gjafakössum sem hægt er að nýta áfram.

EGF Essentials

Gjafasett fyrir heilbrigða húð sem inniheldur EGF serum húðdropa og tvær lúxusprufur.

Vörurnar í gjafasettinu vinna á hrukkum og fínum línum og endurnæra húðina. Inniheldur EGF Serum húðdropa og lúxusprufur af EGF Day Serum og EGF Essence.

Margverðlaunuðu EGF Serum húðdroparnir eru byltingarkennd húðvara sem inniheldur aðeins 7 innihaldsefni, hún hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna, olíu, alkahóls og rotvarnarefna.

Dregur verulega úr fínum línum og hrukkum. Endurnýjar, endurnærir og endurbætir húðina, eykur þéttleika hennar og jafnar raka.

EGF Essence er létt, nærandi andlitsvatn sem eykur mýkt, raka og heilbrigði húðarinnar ásamt því að undirbúa hana fyrir það Bioeffect serum eða rakakrem sem á eftir kemur og auka EGF virkni þeirra.

EGF Day Serum berst gegn öldrun húðarinnar og er sérstaklega hannað fyrir notkun að degi til. Það dregur úr fínum línum og hrukkum, dregur fram ljóma og fallegt litarhaft, jafnar rakastig húðarinnar og veitir mjúka áferð sem gerir það að góðum grunni undir farða.

Vörurnar vinna afar vel saman og mynda góða daglega EGF húðumhirðu. Frábær kynning á Bioeffect vörulínunni.

Notkunarleiðbeiningar

EGF Serum

Berið 2-4 dropa á andlit og háls á hreina húð á hverju kvöldi.

EGF Day Serum

Berið 1-2 pumpur á andlit og háls á hreina húð að morgni. Bíðið í 3-5 mínútur svo húðin geti dregið í sig serumið, áður en sólarvörn eða farði er borinn á.

EGF Essence

Hellið lófafylli af EGF Essence í hendina, um það bil 2-4 skvettur. Þrýstið mjúklega inn í húð á andliti og háls. Notið Bioeffect serum á eftir.

Verð: 14.600 kr. (raunvirði 18.350 kr.)

Gjafakassarnir eru fullkomin jólagjöf en notagildið liggur líka í umbúðunum sjálfum sem hægt er að nota undir skart eða annað lítið dót.
Hér má sjá notagildi gjafakassans en myndina tók Guðrún Sørtveit.

Total Rejuvenation

Gjafasett sem skilar einstökum árangri. Inniheldur 30 Day Treatment og þrjá Imprinting Hydrogel Maska.

Tryggðu hámarksárangur með 30 Day Treatment sem gæðir húðina nýju lífi með virkni í hverjum dropa. Þrír Imprinting Hydrogel Maskar magna áhrifin og veita djúpan raka. Húðin geislar af fegurð og heilbrigði á eftir.

30 Day Treatment er virkasta vara okkar og inniheldur þó bara 9 innihaldsefni, hún hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna, olíu, alkahóls og rotvarnarefna.

Yngir upp og lagfærir húðina, eykur rakastig hennar og gefur jafnara yfirbragð og ljóma. Minnkar hrukkur, húðholur og roða og eykur þéttleika og mýkt húðarinnar.

Imprinting Hydrogel Mask er hágæða rakamaski sem veitir húðinni mikinn og djúpan raka og er sérhannaður til að hámarka áhrif EGF prótínsins í Bioeffect serumum.

Hér er á ferðinni öflug meðferð og frábær gjöf fyrir alla þá sem vilja dekra við húðina.

Notkunarleiðbeiningar

Berið 2-4 dropa af 30 Day Treatment á hreina húð kvölds og morgna. Einu sinni í viku er gott að nota Imprinting Hydrogel Maska til að auka raka og hámarka áhrif meðferðarinnar. Berið 30 Day Treatment á húðina. Opnið maskabréfið, takið maskann varlega í sundur og leggið á húðina. Leyfið maskanum að vera á húðinni í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið afgangsserumi inn í húðina.

Verð: 26.600 kr. (raunvirði 31.670 kr.)

Húðin er stærsta líffærið okkar og því mikilvægt að hugsa vel um hana. Þessi gjafakassi er að okkar mati hin fullkomna jólagjöf fyrir dekurrófuna í þínu lífi en Bioeffect-húðvörurnar hafa um árabil verið með þeim allra vinsælustu og virtar um heim allan. 
egf serum gjafasett hér er smáralind
Power Duo-gjafakassinn inniheldur sívinsælu EGF húðdropana og augnserumið í fullri stærð á 15% afslætti.

Hin fullkomna jólagjöf frá mér til mín.

Við minnum á Tax Free-afslátt í Hagkaup, Smáralind til 26.nóvember.

Meira úr fegurð

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti

Fegurð

Vetrarsport er innblásturinn af nýrri Winter Glow-línu Chanel

Fegurð

Heitustu förðunar­trendin og spennandi snyrtivörur á afslætti

Fegurð

Heitustu hártrendin 2024

Fegurð

Bestu farðar ársins á 23% afslætti á Áramótabombu

Fegurð

Hugmyndir að dekurjólagjöfum á 20% afslætti

Fegurð

Snyrtivörur sem fengu förðunarfræðinginn okkar til að segja VÁ!

Fegurð

Náttúrulegar gæðavörur sem eru í uppáhaldi hjá Hollywood-stjörnunum