Fara í efni

Trendin beint frá tísku­pöllunum í búðir

Tíska - 9. febrúar 2021

Við fórum yfir trendin frá stærstu tískuhúsum heims og skrolluðum í gegnum marga tugi götutískumynda til að taka saman það heitasta fyrir vorið. Hér færðu trendin beint frá belju í búðir.

Við værum til í að ræna þessu lúkki frá tískuhúsinu Etro eins og það leggur sig.

Mynd: IMAXtree.
Bolir með svokölluðu sweetheart-hálsmáli eru hámóðins. Zara er með geggjaðar samfellur með þessu sniði sem fást í nokkrum litum á 3.495 kr.

Rykfrakkarnir úr vor- sumarlínu Louis Vuitton eru ómótstæðilegir. Eitt stykki rykfrakki á innkaupalistann fyrir vorið!

Steldu stílnum!

Mergjaður rykfrakki á fallegri konu á götum Parísarborgar. Mynd: IMAXtree.

Franska tískuhúsið Celine hannaði heitustu gallabuxurnar fyrir næsta vor. Bootcut-stíllinn minnir óneitanlega á aldamótatískuna. Við erum að kaupidda!

Götóttar flíkur eru eitt stærsta trendið í vortískunni. Hér er fyrirsæta í fallegum kjól eftir vinkonu okkar, Victoriu Beckham.

Victoria Beckham vor/sumar 2021.
Vero Moda, 5.590 kr.

Vatteraðir jakkar ná enn á ný upp á tískupallborðið!

Mynd: IMAXtree.
Vatteraður jakki úr Zara, 10.995 kr.

Buxur í skemmtilegum litum koma sterkar inn eins og sjást hér hjá Chanel og Chloé.

Vero Moda, 13.990 og 10.990 kr.
Zara, 6.495 kr.
Tom Ford vor/sumar 2021.
Danski tískuhönnuðurinn Stine Goya er þekkt fyrir skemmtilegar litasamsetningar og lætur ekki sitt eftir liggja í vor.
Victoria Beckham vor/sumar 2021.
Víðar stuttermaskyrtur eru smart í vor.
Zara, 5.495 kr.
Galleri 17, 11.995 kr.

Eigum við að þora að segja það? Klossaðar mokkasíur verða heitasta skóparið á næstunni.

Örlítið kvenlegri útgáfa af mokkasíunum hjá Chanel.

Seventísstíllinn er ekki að fara neitt í bráð.

Seventís-vesti, Zara, 3.995 kr.

Skyrtur með risa Pétur Pan-kraga eru hámóðins.

IMAXtree.
Skyrta, Vero Moda, 6.990 kr.

Hér færðu trendin beint frá belju í búðir!

Meira úr tísku

Tíska

20% afsláttur af heimsþekktum vörumerkjum á borð við Polo Ralph Lauren

Tíska

50 sætustu sparikjólarnir

Tíska

Flottasta golflína J. Lindeberg hingað til

Tíska

Þetta þurfa karlarnir að eiga í fataskápnum fyrir vorið

Tíska

Rándýr lúkk úr ZARA fyrir vorið

Tíska

Stílisti mælir með á afslætti á Kauphlaupi

Tíska

Hátískusólgleraugu á 25% afslætti

Tíska

Skrifstofu­gyðjan slær í gegn