Fara í efni

Vortrend 2021

Tíska - 16. mars 2021

Stöðvið prentvélarnar! Götóttar flíkur eru inni! Og gegnsæjar! Skoðum saman nokkur af stærstu vortrendunum 2021.

Bleikt og bjútífúl

Skærbleikur er einn heitasti tískuliturinn í vor og sumar. Við erum meira en til í að hrista upp í litavalinu okkar!

Karlarnir mega gjarnan klæðast bleiku samkvæmt Versace og Tom Ford.

Steldu stílnum

Hér eru skærbleikar flíkur sem mættar eru í verslanir.

Þessi fallegi blazer-kjóll er málið í sumar! Zara, 16.995 kr.

Auðveld leið til að bæta bleiku í líf þitt!

Langt og lekkert

Síðustu ár hafa chokerar (fyrrverandi mellubönd) og keðjur verið allsráðandi í fylgihlutatískunni. Nú koma síðar hálsfestar ferskar inn. Og ekki er verra ef dinglumdanglið inniheldur eðalsteina úr djúpum hafsins líkt og perlur, skeljar eða kuðunga.

Ítalska tískuhúsið Alberta Ferretti sendi frá sér guðdómlegar, síðar hálsfestar fyrir vorið.
Zara, 3.495 kr.
Jón og Óskar, 19.200 kr.

Sportíspæs

Þægindin eru í fyrirrúmi í vortískunni og við hötum það ekkert!

Balenciaga blandar hér saman íþróttabuxum við sparitopp.
Lita-og lífsgleðin í hámarki hjá meistara Tom Ford!

Gegnsæi

Flíkur úr gegnsæju efni í anda tísku tíunda áratugarins sáust á tískusýningarpöllunum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Þetta lúkk frá Fendi er í uppáhaldi hjá okkur. Litasamsetning er eitthvað svo fersk!

Mynd:IMAXtree.

Sænska tískuhúsið Acne sendi smart gegnsæ lúkk niður tískusýningarpallinn.

Og Burberry, Gabriela Hearst og Givenchy.

Götótt

Stöðvið prentvélarnar! Götóttar flíkur eru inni! Miuccia Prada sendi smart peysur með götum niður pallinn og vinkona okkar, hún Victoria Beckham hannaði smart kjóla með götum á óvæntum stöðum.

Victoria Beckham er alltaf með puttann á púlsinum!

Bakið er sá líkamshluti sem fær sinn tíma í sviðsljósinu í vortískunni.

Mínípils

Pínu-mínípils verða málið í sumar, samkvæmt stærstu tískupekúlöntum heims. Við krossum fingur og vonum heitt og innilega að við fáum að klæðast efnislitlu í vor og sumar.

Íslenska vefverslun Zara má finna hér.

Vorið nálgast óðfluga!

Meira úr tísku

Tíska

20% afsláttur af heimsþekktum vörumerkjum á borð við Polo Ralph Lauren

Tíska

50 sætustu sparikjólarnir

Tíska

Flottasta golflína J. Lindeberg hingað til

Tíska

Þetta þurfa karlarnir að eiga í fataskápnum fyrir vorið

Tíska

Rándýr lúkk úr ZARA fyrir vorið

Tíska

Stílisti mælir með á afslætti á Kauphlaupi

Tíska

Hátískusólgleraugu á 25% afslætti

Tíska

Skrifstofu­gyðjan slær í gegn