Fara í efni

Einfalt eplapæ

Lífsstíll - 4. desember 2020

Er eitthvað meira fílgúdd en volgt eplapæ með þeyttum rjóma? Ef einhvern tíma við eigum skilið að borða tilfinningar okkar, eða þið vitið. Hér er ein dásamlega einföld uppskrift sem væri pottþétt ekki óvinsælt að bjóða upp á um helgina.

Epla- og kanilpæ með þeyttum rjóma

  • 100 g hveiti
  • 100 g púðursykur
  • 100 g smjör við stofuhita
  • 2 jonagold epli
  • 1 krukka St. Dalfour epla- og kanilsulta (284 g)
  • 150 g mulið marsípan
  • 40 g pekanhnetur (saxaðar)
  1. Hitið ofinn í 180°C.
  2. Blandið hveiti, púðursykri og smjöri saman í hrærivélinni.
  3. Smyrjið eldfast mót (um 25 cm í þvermál) með smjöri og þjappið deigblöndunni í botninn og vel upp á kantana.
  4. Hellið úr sultukrukkunni yfir og dreifið úr sultunni yfir botninn.
  5. Flysjið næst eplin og kjarnhreinsið. Skerið í þunnar sneiðar og raðið þétt yfir allt mótið.
  6. Stráið söxuðum pekanhnetum og muldu marsípani yfir eplin að lokum.
  7. Bakið í um 35 mínútur, fyrst í 20 mínútur með álpappír yfir og síðan í um 15 mínútur til viðbótar (þetta gert til þess að marsípanið brenni ekki).
  8. Gott er að bera volgt pæ fram með þeyttum rjóma eða ís.
Uppskrift og mynd: Berglind Hreiðarsdóttir hjá Gotterí og gersemum. Bókin hennar, Saumaklúbburinn, fæst í Pennanum Eymundsson, Smáralind.

Fylgið Gotterí og gersemum HÉR

Kaupið bókina HÉR

Er eitthvað dásamlegra og meira fílgúdd en volgt eplapæ með þeyttum rjóma?

Meira úr lífsstíl

Lífsstíll

Óskalisti stílista á afslætti á Dekurkvöldi

Lífsstíll

Valentínusar­dagurinn nálgast

Lífsstíll

Ættum við að bæta kollageni inn í rútínuna okkar?

Lífsstíll

Rakel María þjálfari gefur góð heilsuráð

Lífsstíll

Helga Magga næringarþjálfari deilir hollum og góðum uppskriftum

Lífsstíll

Magnaður snjallhringur kominn á markað

Lífsstíll

Góð ráð til að ná úr sér janúar sleninu

Lífsstíll

Jólagjafa­hugmyndir Rakelar Maríu