Fara í efni

Nýstárleg bolludagsuppskrift

Lífsstíll - 12. febrúar 2021

Bolludagur nálgast og við vitum öll hvað það þýðir! Hér er nýstárleg útgáfa af bolludagsbollu í vatsndeigslengjuformi sem við erum að spá í að skella í um helgina. Bon Appétit!

Berglind hjá Gotterí og gersemum töfraði fram þessa nýstárlegu bolludagsuppskrift.

Vatnsdeigslengjur með kaffirjóma

(15-18 lengjur)

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
  3. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
  4. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
  5. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni.
  6. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
  7. Setjið deigið í sprautupoka með um 1,5 cm breiðum stút og sprautið 15 cm lengjur á bökunarpappír með gott bil á milli.
  8. Bakið í 27-30 mínútur, lengjurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina.

Fylling

  • 600 ml rjómi
  • 2 msk. flórsykur
  • 15 g fínmalað instant kaffiduft
  • 125 g saxað Toffifee (1 pakki)
  1. Þeytið saman rjóma, flórsykur og instant kaffiduft.
  2. Vefjið söxuðu Toffifee saman við og fyllið lengjurnar með kaffirjóma.

Súkkulaðiglassúr og skraut

  • 100 g brætt smjör
  • 210 g flórsykur
  • 2 msk. Cadbury bökunarkakó
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. uppáhellt kaffi
  • Toffifee
  1. Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó, vanilludropa og kaffi þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
Mynd og uppskrift: Berglind Hreiðarsdóttir.

Bon Appétit!

Meira úr lífsstíl

Lífsstíll

Óskalisti stílista á afslætti á Dekurkvöldi

Lífsstíll

Valentínusar­dagurinn nálgast

Lífsstíll

Ættum við að bæta kollageni inn í rútínuna okkar?

Lífsstíll

Rakel María þjálfari gefur góð heilsuráð

Lífsstíll

Helga Magga næringarþjálfari deilir hollum og góðum uppskriftum

Lífsstíll

Magnaður snjallhringur kominn á markað

Lífsstíll

Góð ráð til að ná úr sér janúar sleninu

Lífsstíll

Jólagjafa­hugmyndir Rakelar Maríu