Fara í efni

Með skósýki á háu stigi

Lífsstíll - 6. maí 2020

Dísa Pétursdóttir, verslunarstjóri GS Skór í Smáralind hefur mikinn áhuga á tískunni og ekki síst skóhönnun sem kemur sér einstaklega vel í hennar starfi eins og gefur að skilja.

Við forvitnuðumst um það sem er á óskalistanum hennar og sumartrendin sem hún er spenntust fyrir.

Ég er mjög spennt fyrir pastellitunum sem eru voða mikið inn núna. Ég er líka mjög veik fyrir settum eða “co’ords”, sem er auðvitað líka hægt að nota í sitthvoru lagi, þau eru æði á sumrin. Svo elska ég líka pils og get eiginlega ekki beðið eftir því að það fari að verða nógu hlýtt fyrir þau. Gollur og perlur eru líka í uppáhaldi sem eru einmitt stór trend í sumar. Ég er alveg ástfangin af tískunni í dag.

Hvað er á óskalistanum þínum fyrir sumarið? 

Vá, það er svo margt! Mig langar að fylla fataskápinn af fallegum pastellitum! En það sem er efst á listanum eru líklegast baklausir bolir og kjólar. Svo eru auðvitað skór á óskalistanum mínum, en ég er með algjöra skósýki sem hentar vel í mínu starfi sem verslunarstjóri skóverslunar. Skórnir sem eru efst á listanum hjá mér eru mjög ólíkir, en ég er með frekar fjölbreyttan smekk. Támjóir lakkskór eru eitthvað sem mér finnst vera algert möst að eiga, en draumaskórnir í lakki eru frá Jeffrey Campbell. Hællinn á þeim er frekar grófur en þeir eru samt svo elegant og sexí. Svo eru það kúrekaskór en ég er með bæði kúrekastígvélin frá Sendra á óskalistanum og hvíta opna frá Jeffrey Campbell. Þessi skópör eru ný í GS skór. Kúrekastígvél eru rosalega inn í sumar, enda passa þau mjög vel við tískuna. Svo er enn eitt parið á óskalistanum mínum en þeir eru frá Unif og eru væntanlegir í Galleri 17, það eru mjög gróf svört stígvél með „platformi“ sem heita Parker Boots og ná upp á miðjan kálfa.”

Uppáhaldsfarði og varalitur á vor-og sumarmánuðum?

Uppáhalds varatvennan mín er varablýanturinn Stone frá MAC og mattur gloss nr 101 frá Estée Lauder. Uppáhalds farðinn minn er frá Too Faced, sem fæst því miður ekki hér á Íslandi en það er hægt að panta hann bæði á Asos og á Selfridges-vefsíðunni Ég er með mjög olíukennda húð en á til að fá bæði þurrk og bólur, þessi farði heldur óþarfa glansi frá húðinni en losar mig við þurra bletti. Ég nota svo yfirleitt púðrið Studio Fix frá MAC yfir meikið ef húðin mín er sérstaklega olíukennd þann daginn.

Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn?

Uppáhaldshönnuðurinn minn er Karl Lagerfeld, ég dýrka eiginlega allt sem kemur frá honum. Finnst hann hitta í mark með grófum en elegant stíl. Uppáhalds skóhönnuðurinn minn er hins vegar Jeffrey Campbell, en skórnir frá honum eru alltaf mjög áberandi og töff. Það er tilhlökkunarefni í hvert skipti sem við skoðum nýjustu línuna frá Jeffrey Campell og pöntum inn fyrir GS Skór.

Hvert er mesta tískuslysið þitt í gegnum tíðina?

Það er pottþétt skinkutímabilið sem margir tóku, Adidas og Pink-buxur-tímabil, alltof dökkt meik og augabrúnir, alveg hræðilegt!

Hvaða trend langar þig ekki að sjá aftur?

Ég held að flest fari hringinn en ég er eiginlega viss um að 2006-2007 tískan eigi ekki eftir að koma aftur, þá var æði að vera í svona víðum peysum og kjólum, litríkum leggings, svaka belti við og mjög ýkt hálsmen, stundum með hárspöng líka. Veit ekki hvort fólk muni eftir þeirri tísku en ég eiginlega vona bara að hún komi ekki aftur, haha!

Það er tilhlökkunarefni í hvert skipti sem við skoðum nýjustu línuna frá Jeffrey Campell og pöntum inn fyrir GS Skór.

Meira úr lífsstíl

Lífsstíll

Óskalisti stílista á afslætti á Dekurkvöldi

Lífsstíll

Valentínusar­dagurinn nálgast

Lífsstíll

Ættum við að bæta kollageni inn í rútínuna okkar?

Lífsstíll

Rakel María þjálfari gefur góð heilsuráð

Lífsstíll

Helga Magga næringarþjálfari deilir hollum og góðum uppskriftum

Lífsstíll

Magnaður snjallhringur kominn á markað

Lífsstíll

Góð ráð til að ná úr sér janúar sleninu

Lífsstíll

Jólagjafa­hugmyndir Rakelar Maríu