Fara í efni

Gefum klassíska hönnun

Heimili & hönnun - 19. mars 2021

Tími ferminga og útskrifta er hafinn og því tilvalið að velja klassíska hönnun í pakkann. Í Smáralind er að finna fjöldan allan af fallegum hönnunarvörum, þar á meðal frá heimsþekkta framleiðandanum Vitra sem fást í Pennanum.

Vitra kannast margir við en fyrirtækið var stofnað í Sviss árið 1950. Í gegnum tíðina hafa margir af þekktustu hönnuðum heims hannað vörur fyrir fyrirtækið líkt og Charles og Ray Eames, George Nelson, Alexander Girard og Arik Levy ásamt fleirum. Það sem einkennir þá stefnu sem fyrirtækið starfar eftir er fullt listrænt frelsi hönnuðanna til eigin sköpunar sem endurspeglast síðan á skemmtilegan hátt í vörunum.


Charles og Ray Eames

Charles lærði arkitektúr í Washington University í St. Louis og hannaði fjölda bygginga í samstarfi við aðra arkitekta og hlaut mikið lof fyrir. Í upphafi fimmta áratugarins færði hann sig svo yfir í iðn- og vöruhönnun og kenndi við Cranbrook háskólann í New York. Í borginni lágu leiðir þeirra hjóna saman en Ray lagði stund á myndlist við Hans Hofmann School of Fine Arts og varð fljótt þekkt fyrir abstrakt verk sín. Hjónin fluttu svo saman til Los Angeles þar sem samstarf þeirra hófst í húsgagnahönnun fyrir framleiðandann Herman Miller. Árið 1957 gerði Vitra svo samning við fyrirtækið um framleiðslu á húsgögnum Eames-hjóna í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Smátt og smátt hófst svo framleiðsla á öðrum vörum eftir hönnun hjónanna líkt og House Bird og Hang it all sem óhætt er að segja að hafi slegið í gegn.

Fatahengið Hang It All hönnuðu hjónin árið 1953 og var tilgangur þess að hvetja börn til þess að vera duglegri að hengja upp fötin sín. Fatahengið er gert úr stáli og viðarkúlum en upphaflega hengið var marglitt til að draga athygli barna að sér. Hönnunin er orðin algjör klassík og er nú framleidd í hinum ýmsum litatónum sem ættu að höfða til flestra og fer það vel hvar sem er á heimilinu.
Hang It All í lit.
Fuglinn er orðinn nokkurs konar táknmynd hjónanna en þessi viðarfugl var í miklu uppáhaldi hjá þeim og stóð í stofunni á heimili þeirra í yfir fimmtíu ár. Þau notuðust einnig við hann í ýmsum útstillingum en hönnunin er innblásin af bandarískri alþýðulist. Fuglinn fæst hvítur, svartur og úr gegnheilli hnotu.

George Nelson

George Nelson var menntaður arkitekt frá Yale háskóla. Á árunum 1932-34 stundaði hann svo nám við American Academy í Róm og þar kynntist hann módernismanum fyrir alvöru. Hann lagði einnig stund á blaðamennsku og skrifaði greinar um arkitektúr og húsgagnahönnun sem vakti athygli Herman Miller sem réð hann síðan í vinnu sem yfirhönnuð fyrirtækisins en hann gegndi því starfi allt til ársins 1972. Nelson hannaði ýmsar vörur fyrir fyrirtækið sem Vitra framleiddi svo fyrir Evrópumarkað og má þar til dæmis nefna fallegar vegg- og borðklukkur sem náðu gríðarlegum vinsældum.

Veggklukkurnar hannaði Nelson á árunum 1948-60 í mörgum mismunandi útgáfum og eru þær flestar gerðar úr málmi og við. Klukkurnar náðu miklum vinsældum og hafa margar þeirra orðið að nokkurs konar táknmynd fyrir hönnun sjötta áratugarins enda tímalaus hönnun sem alltaf á við. Ball Clock er líklegast þekktasta útgáfan en hún fæst í mörgum skemmtilegum litatónum.

Ball Clock er líklegast þekktasta útgáfan en hún fæst í mörgum skemmtilegum litatónum.

Borðklukkur Nelsons voru hannaðar á árunum 1947-53 með það fyrir augum að vera ekki bara klukkur heldur einnig fallegir skrautmunir sem myndu sóma sér vel inni á hverju heimili. Hágæða gangverk er í klukkunum sem gert er til þess að endast vel. Klukkurnar koma í nokkrum mismunandi útgáfum og fæst Tripod klukkan í Pennanum í Smáralind.
Tripod klukkan fæst í Pennanum í Smáralind.

Alexander Girard

Alexander Girard var menntaður arkitekt og einn þekktasti hönnuður eftirstríðsáranna í Bandaríkjunum. Hann varð upphaflega þekktur fyrir textílhönnun sem hann gerði fyrir Herman Miller þar sem afgerandi form og litir voru einkennistákn hans. Ásamt textíl hannaði hann húsgögn og ýmsa listmuni sem Vitra framleiðir enn í dag. Alexander var mikill frumkvöðull og leita margir hönnuðir samtímans innblásturs í verk hans. Listmunir hans hafa ekki síður vakið athygli en mikil leikgleði einkennir þá.

Fyrstu viðarbrúðurnar litu dagins ljós árið 1952 og vöktu strax athygli en Girard hannaði þær upphaflega fyrir sitt eigið heimili. Hver og ein býr yfir sínum sérstaka persónuleika sem endurspeglar mismunandi manngerðir. Brúðurnar hafa í gegnum tíðina verið vinsælar sem tækifærisgjafir og orðnar að safngripum.

Brúðurnar hafa í gegnum tíðina verið vinsælar sem tækifærisgjafir og orðnar að safngripum.

Mynstur Girards sem upphaflega sáust í textílhönnun hans hafa einnig ratað víðar en hann var meðal annars ráðinn sem innanhússhönnuður fyrir hin ýmsu veitingahús. Þar hannaði hann allt frá útliti staðanna til smáhluta sem prýddu þá líkt og kaffibolla sem urðu svo vinsæl gjafavara í framleiðslu Vitra. Einn vinsælasti bollinn ber heitið New Sun sem lýsir honum vel. Hver vill ekki byrja daginn á fullum bolla af sólskini?

Einn vinsælasti bollinn ber heitið New Sun sem lýsir honum vel. Hver vill ekki byrja daginn á fullum bolla af sólskini?

Arik Levy


Arik Levy er menntaður iðnhönnuður frá Art Center College of Design í Sviss. Hann hefur í gegnum tíðina lagt stund á kennslu í París og verið með fjöldan allan af opnum vinnustofum í Evrópu. Einnig hefur hann fengist við sviðshönnun en árið 1997 stofnaði hann sína eigin hönnunarstofu ásamt Pippo Lionni þar sem hann hannar allt frá innsetingum og skúlptúrum til ýmissa vara fyrir hversdagslega notkun. Frá árinu 2000 hefur Levy verið í samstarfi við Vitra þar sem hann hefur hannað alls kyns skrifstofu- og skipulagsvörur með frábært notagildi.

Tool Box var hannað til þess að koma betra skipulagi á smáhluti heimilisins og skrifstofunnar sem annars þvælast oft fyrir.

Boxið getur bæði staðið á borði eða inni í skáp og hefur gott handfang sem auðveldar tilfærslur. Formið er einfalt og stílhreint og fæst boxið í fallegum litum sem lífga svo sannarlega upp á heimilið og skrifstofuna.


Þú finnur fallegar gjafir sem standast tímans tönn í Smáralind.

Meira úr heimili & hönnun

Heimili & hönnun

Persónuleg ráð frá reyndum innanhúss stílista

Heimili & hönnun

Heimilistrend sumarsins 2024

Heimili & hönnun

Páskaföndur og fínerí

Heimili & hönnun

Páskaborðið upp í bústað að hætti stjörnustílista

Heimili & hönnun

Vor í lofti hjá H&M Home

Heimili & hönnun

Leynitrix stílistans fyrir fermingar­veisluna

Heimili & hönnun

3 áberandi stílar innanhúss sem þú mátt ekki missa af

Heimili & hönnun

Heitustu innanhússtrendin 2024