Fara í efni

Fermingar­kvöld Hagkaups

Fjölskyldan - 26. febrúar 2024

Færri komust að en vildu á fermingarkvöld Hagkaups sem haldið var í Hagkaup Smáralind á dögunum. Þar var hægt að kynna sér fjölmargar vörur sem Hagkaup selur fyrir ferminguna eins og skrautið í veisluna, gómsætan veislumat, gullfallegar kökur og förðunarvörur fyrir stóra daginn.

Hápunktur kvöldsins var förðunarkennsla í samstarfi við Beautyklúbbinn þar sem farið var yfir létta húðumhirðu og einfalda förðun fyrir fermingardaginn. Lilja Gísladóttir förðunarfræðingur og markaðsfulltrúi Hagkaups sá um kennsluna.

Létt og falleg förðun fyrir fermingardaginn.

Við höfum tekið eftir því að það er mikil fjölgun af ungum viðskiptavinum hjá okkur og augljóst að yngri kynslóðin er farin að sækja meira í förðunarvörur. Við viljum endilega fræða og aðstoða viðskiptavini okkar eftir fremsta megni í þessum málum og leiðbeina ungu fólki og þeirra forráðamönnum um notkun á þessum vörum. Við vitum að samfélagsmiðlar eru í auknum mæli að búa til pressu og jafnvel óraunhæfar kröfur á einstaklinga bæði hvað varðar húðumhirðu og förðun. Viðburðir eins og fermingarkvöldið sem við héldum er frábær leið til þess að fræða okkar viðskiptavini um húðina, hún er mismunandi hjá okkur öllum og það sem við sjáum á samfélagsmiðlum í gegnum filtera endurspeglar ekki raunveruleikann,“ segir Lilja.

Það var vel sótt á námskeiðið og komust færri að en vildu. „Það var virkilega gaman að sjá hvað áhuginn var mikill og bæði fermingarbörn og forráðamenn mjög áhugasöm og dugleg að spyrja spurninga.“

Boðið var upp á ýmsar kræsingar og kynningar á fermingarkvöldinu. 17 Sortir voru með kynningar á sínum glæsilegu kökum, Confetti systur ásamt Skreytingarþjónustunni sýndu glæsilegar skreytingar fyrir stóra daginn en vörurnar þeirra má finna í öllum verslunum Hagkaups. 

Veisluþjónusta Hagkaups, Veisluréttir,  kynntu brot af úrvali sínu og má sérstaklega nefna nýjungar á borð við tortilla vefjur fylltar með allskyns góðgæti, litlir hamborgarar, sætir bakkar og meira til. Úrvalið má skoða á vef Hagkaups og panta fyrir veislu. 

Tortilla-vefjur frá Veisluréttum, veisluþjónustu Hagkaups.
Hægt er að panta allskyns góðgæti fyrir veisluna frá Veisluréttum, veisluþjónustu Hagkaups.

„Fermingarkvöldið tókst gríðarlega vel og við getum varla beðið eftir því að endurtaka leikinn að ári. Úrvalið fyrir ferminguna hefur aldrei verið meira í Hagkaup og við erum virkilega ánægð að geta boðið okkar viðskiptavinum upp á það að geta keypt allt fyrir veisluna á einum stað,“ segir Lilja Gísladóttir.

Meira úr fjölskyldan

Fjölskyldan

Bestu gjafa­hugmyndirnar fyrir fermingar­barnið

Fjölskyldan

Stjörnustílisti skreytir fermingar­veisluborðið

Fjölskyldan

Hugmyndir að bóndadags­gjöfum

Fjölskyldan

Jólagjafir fyrir börn og unglinga undir 5.000 kr.

Fjölskyldan

Jólafötin á börnin

Fjölskyldan

Dúndurdílar á Kauphlaupi

Fjölskyldan

Allt klárt fyrir Hrekkjavöku

Fjölskyldan

Megadílar á Miðnæturopnun! Stílisti velur brot af því besta