Fyrir hana
Útsölur eru frábært tækifæri til að fjárfesta í klassískum hlutum eins og góðum yfirhöfnum, buxum eða skóm sem fara aldrei úr tísku. Trendí flíkur á 70% afslætti? Hugsanlega skemmtileg pæling en líklegar til að enda í gefins-bunkanum áður en árið er á enda. Hér er það sem stílistinn okkar er með augastað á.
Retinol-hylkin frá Elizabeth Arden auka endurnýjun húðfruma og kollagenframleiðslu húðarinnar. Hylkin, sem slegið hafa í gegn hjá konum um heim allan, fyrirbyggja og vinna á djúpum og fínum línum og eru nú á 30% afslætti í Hagkaup.
Fyrir hann
Er kominn tími til að öppdeita ræktarfötin? Hér er hægt að gera góð kaup á útsölunni í Smáralind.
Það er auðvelt að tapa sér í glitrandi skilaboðum um hellings afslátt en gott er að setja saman lista yfir það sem þig virkilega vantar – eða hefur lengi verið á óskalistanum. Það er mun skemmtilegra að finna draumahlut á afslætti en að lenda með fjórðu óþörfu peysuna í fataskápnum!
Fyrir börnin
Eru hlýju vetrarfötin á börnin á síðasta snúning?