Stöðug aukning er á að skoðuð séu tengsl mataræðis við til að mynda einhverfu, athyglisbrest, ofvirkni, lesblindu og Tourette. Hér fyrir neðan ætlum við að segja frá helstu þáttum í mataræði sem hafa gefið góða raun þegar átt er við athyglisbrest, með eða án ofvirkni og virðist vera að sömu þættir hafi verið að gefa góða raun þegar kemur að annars konar kvillum sem koma fram í hegðunarvandamálum.
Það er fernt sem virðist skipta mestu máli varðandi mataræði og hegðunarraskanir:
- Taka út gersveppamyndandi og ofnæmisvaldandi fæði
- Taka út fæði sem inniheldur aukaefni
- Taka út salisílöt og efni sem unnin eru úr þeim
- Taka inn lífsnauðsynlegar fitusýrur og önnur nauðsynleg bætiefni
Gersveppamyndandi og ofnæmisvaldandi fæði
Endurtekin og/eða löng inntaka á sýklalyfjum drepur niður góðu bakteríuflóruna í meltingarveginum. Þetta getur myndað ójafnvægi þar sem vöxtur gersveppa verður of mikill á kostnað góðra baktería. Þetta ástand getur valdið því að við vinnum ekki upp næringarefni sem skildi og ýmsir óæskilegir gestir eiga greiða leið inn í kerfið okkar. Þetta getur valdið einkennum sem svipar til einkenna ADD og ADHD.
Þegar börn eru greind með hegðunarvandamál ætti fyrsta skrefið að vera það að leiðrétta jafnvægi þarmaflórunnar. Taka þarf út alla fæðu sem ýtir undir vöxt gersveppsins og neyta í auknu mæli fæðis sem ýtir undir myndun góðra baktería. (Sjá grein um gersveppaóþol).
Ójafnvægi í meltingarflórunni getur valdið ástandi sem meðal annars hefur verið kallað þarmaleki eða lekar garnir (leaky gut). Þarmaleki gerir það að verkum að of stórar sameindir sleppa út í blóðrásina, þ.e.a.s. sameindir sem hafa ekki að fullu verið brotnar niður og getur þetta valdið ofnæmisviðbrögðum.
Aukaefni í matvöru
Sífellt fleiri rannsóknir sýna að ýmis aukaefni í matvöru ýta undir ofvirka hegðun. Áríðandi er að taka út eins og mögulegt er, öll litarefni, bragðefni, rotvarnarefni og sætuefni úr fæði barnanna. Þessi efni geta haft áhrif á taugakerfið og draga þau úr næmi fyrir taugaboðum.
Varist sérstaklega:
E-621 -> Monosodium glutamate - MSG
E-321 -> Butylated hydroxy toluene (BHT)
E-320 -> Butylated hydorxy anisol (BHA)
E-251 -> Sodium Nitrate
E-250 -> Sodium Nitrite
E-211 -> Sodium Benzoate
Potassium nitrate
Sulfur dioxide
Acesulfame-K
Aspartam
Salísílöt
Forðist fæðutegundir sem innihalda salísílöt. Þær eru helstar:
- Möndlur - Nektarínur
- Epli - Appelsínur
- Apríkósur - Ferskjur
- Ber - Paprikur
- Negull - Plómur
- Kaffi - Kartöflur
- Agúrka - Sveskjur
- Rúsínur - Te
- Eggaldin - Tómatar
- Vínber
- Mynta
Varist Aspirín þar sem það er unnið úr salísólötum.
Lífsnauðsynlegar fitusýrur og önnur bætiefni
Við þurfum að fá lífsnauðsynlegu fitusýrurnar, omega-3 og omega-6 úr fæðunni, þar sem við myndum þær ekki sjálf. Þessar fitusýrur eru okkar aðal byggingarefni í líkamanum og til að mynda er 60% heilans fita.
Omega-3 fitusýrur fáum við t.d. úr hörfræolíu og dökkgrænu laufgrænmeti
Omega-6 fitusýrur fáum við úr fræjum og hnetum og kaldpressuðum olíum unnum úr þeim.
Gefið börnunum kvöldvorrósarolíu en hún inniheldur gamma-linolenic acid (GLA). Talað hefur verið um að börn með ADD/ADHD geti ekki myndað þessa fitusýru sem er okkur nauðsynleg.
Gefið börnunum einnig DHA sem er unnin úr fiski. Mikið er af DHA í laxi, makríl, túnfiski, síld og sardínum.
Aðrir þættir sem þarf að huga að fyrir utan mataræði
- mengandi efni í umhverfi
- sýklalyfjanotkun
- sjónvarpsáhorf og notkun tölvuleikja
- dagleg hreyfing
- stjórn á umhverfi til að draga úr steitu / oförvun
- jákvæð styrking á æskilegri hegðun
- ómæld ást og stuðningur
Greinin birtist fyrst á Heilsubankinn.is og er einnig birt á Lyfja.is.