Fara í efni

Förðunarfræðingur mælir með frá MAC

Fegurð - 10. júlí 2024

Hér eru þær snyrtivörur sem förðunarfræðingurinn okkar mælir með frá MAC sem eru ómissandi í snyrtibudduna.

Enginn eins og Teddy!

Augnblýanturinn frá MAC í litnum Teddy er einstakur! Við höfum aldrei fundið neinn lit sem lætur blá augu skína jafn skært og sá litur enda eru hlýju tónarnir í honum andstæðir við þann bláa (og græna ef út í það er farið) og því gerist eitthvað einstakt þegar hann er notaður í kringum augun. Ef þú vilt gera sexí smokey-förðun, mælum við með honum í vatnslínuna.
Eye Kohl í litnum Teddy frá MAC, 4.104 kr.

Ljómandi ljómakrem

Strobe-kremið frá MAC er hinn fullkomni grunnur undir farða ef þú vilt framkalla ljómandi húð og má gjarnan finna í "kitti" förðunarfræðinga. Vel þess virði að fjárfesta í!
Strobe Cream, vítamínauðgað rakakrem sem veitir þreyttri húð líf og lýsir upp með einstökum ljóma. MAC, 7.249 kr.

Náttúrulegasti farði heims?

Face And Body frá MAC er sá farði sem er líklegast að þú finnir í "kitti" förðunarfræðinga um heim allan. Ástæðan er einföld, hann er einstaklega náttúrulegur og verður eitt með húðinni, auðvelt er að byggja hann upp og svo er hann líka vatnsheldur og hægt að nota á líkamann. Munið að hrista brúsann fyrir ásetningu og við mælum með því að nota fingurna til að nudda honum inn í húðina.
Face And Body-farði frá MAC, 7.410 kr.

Kremaður kinnalitur

Kremaðir kinnalitir hafa verið að trenda en ein besta formúlan sem við höfum komist í tæri við kemur úr smiðju MAC og heitir Glow Play Blush. Formúlan er mitt á milli þess að vera krem og svampkennt púður sem gefur einstakan ljóma og áferð á húðina. Best að nota með fingrunum eða gervihárabursta.
Glow Play Blush í litnum Blush, Please frá MAC, 5.453 kr.
Notaðu Glow Play Blush ofarlega á kinnbeinin og að eplum kinnanna með fingrunum.

Farðasprey par exelans

Fix+ er eitt af þessum snyrtivörum sem við sækjumst í aftur og aftur. Það er fullkomið þegar búið er að nota púður, til að fá sem náttúrulegasta áferð og ljóma á húðina.
Fix+ farðaspray frá MAC, 5.233 kr.
Spreyjaðu Fix+ í lok förðunarrinnar og dúmpaðu inn með rökum svampi. Leynitrix förðunarfræðings hér á ferð!

Geggjaður grunnur

Við elskum Paint Pot-in frá MAC sem eru kremaðir augnskuggagrunnar sem einnig er hægt að nota eina og sér. Þeir koma í miklu litaúrvali en sá litur sem við verðum að eiga er hinn fullkomni, náttúrulegi skuggalitur fyrir okkar húðtón og heitir Groundwork. Til í "kittum" flestra förðunarfræðinga sem við þekkjum!
Paint Pot í litnum Groundwork frá MAC, 4.749 kr.

Uppbrett augnhár

Augnhárabrettari getur breytt leiknum þegar kemur að fallegri augnumgjörð. Þá kemur brettarinn frá MAC sterkur inn en hann er í uppáhaldi margra förðunarfræðinga. Mælum með!
Augnhárabrettari frá MAC, 4.427 kr.
Vandaður augnhárabrettari breytir leiknum!

Hinn klassíski nude

Velvet Teddy ætti að vera til á hverju heimili enda hinn fullkomni nude litur fyrir svo marga mismunandi húðtóna.
Velvet Teddy-varalitur frá MAC, 4.507 kr.

Palletta drauma okkar

Connect In Colour-augnskuggapallettan í Unfiltered Nudes er það eina sem við þurfum þegar kemur að augnskuggum. Tólf klæðilegir "nude" litir í köldum og hlýjum tónum með bæði möttum, sanseruðum og glimmeruðum augnskuggum. Góð fjárfesting!
Connect In Colour-augnskuggapalletta í Unfiltered Nudes frá MAC, 12.249 kr.
Þú getur framkallað bæði létta dagförðun og sexí smokey með Connect in Colour-pallettunni.

Nýjungar

MAC kom nýverið með á markað augabrúnablýantinn Pro Brow Definer sem er 1mm að þykkt sem er svo mjór að auðvelt er að nota hann til að teikna strik sem líkjast hári. Einnig er augabrúnagelið Pro Locked Down nýtt en það heldur brúnunum á sínum stað án þess að skilja eftir sig hvítar klessur eða gera hárin hörð.
Pro Brow Definer 1mm augabrúnablýantur frá MAC, 5.072 kr.
Pro Locked Brow augabrúnagel frá MAC, 5.072 kr.
Nýja augabrúnagelið frá MAC skilur ekki eftir sig hvítar klessur og heldur augabrúnahárunum á sínum stað allan daginn.

Meira úr fegurð

Fegurð

Förðunarfræðingurinn okkar mælir með nýjum og spennandi snyrtivörum á Tax Free

Fegurð

Nýtt frá Chanel

Fegurð

Þetta er klippingin sem allar kúl stelpurnar verða með á næstunni

Fegurð

Best í brúnku! Nýjar og ljómandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Sjóðheitir sumarilmir

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Sumartrendin í förðun og Gosh á 20% afslætti

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti