Fara í efni

Nýtt frá Chanel

Fegurð - 13. ágúst 2024

Nýja förðunarlínan frá Chanel er litrík og lokkandi.

Töfrandi sumarparadís Chanel

Nýja sumarlína Chanel sem er nýlent í verslunum sótti innblástur í fantasíuveröld náttúrunnar þar sem litadýrð er í hávegum höfð. Skærgrænir, ýktir appelsínugulir, skærbleikir og fjólutónar njóta sín í snyrtivörum sem einfalt er að nota og bæta inn í förðunarrútínuna sína. Ammy Drammeh, sem hannaði línuna sagði að ævintýraveröld og litrík blóm hafi heillað hana og hún vildi brúa bilið á milli fantasíuveraldar og raunveruleikans. Snyrtivörulínan býður upp á nýja leið til að leika sér með liti á einfaldan hátt og því um að gera að leifa hugmyndafluginu og uppáhaldslitunum sínum að ráða ferðinni.
Lily-Rose Depp ber nafn með rentu og smellpassar inn í auglýsingaherferð Chanel að þessu sinni þar sem blóm eru meðal annars innblásturinn.

Steldu stílnum

Græni og blái liturinn í Stylo Ombre Contour voru notaðir í augnförðun Lily-Rose.
Uppáhaldsliturinn okkar úr línunni heitir Attaya og er skær bronslitur sem lætur blá og græn augu skína skært. Þessi augnskuggapenni helst líka mjög vel á út daginn. Fæst í Hagkaup, Smáralind.

Uppáhalds

Ein uppáhaldssnyrtivaran okkar frá Chanel eru svokallaðir Baume Essentiel Multi Use Glow Stick en þeir koma í mörgum litatónum, sem hægt er að nota sem kinnalit eða highlighter. Tveir litir eru í nýju línunni, Moonlight Kiss, sem er ljós highlighterlitur með gylltum undirtón og Solar Glow, sem er dekkri highlighterlitur með koparundirtón sem nýtur sín extra vel á dekkri húðtónum.
Baume Essentiel í Solar Glow og Monlight Kiss.
Fallegt er að nota Baume Essentiel stiftin efst á kinnbeinin fyrir náttúrulegan glans og ljóma.

Nútímaleg naglalökk

Þrír naglalakkslitir tilheyra nýju línunni sem er mjög y2k-legur eiturgrænn, ljómandi brúnn tónn og bleiksanseraður sem hægt er að nota einan og sér eða yfir önnur lökk fyrir extra glans.
Hér má sjá alla naglalakkalitina í sumarlínu Chanel.
Liturinn Rêveuse á Lily-Rose.

Kinnalitur- og ljómi

Tvö kinnalitadúó tilheyra línunni, sem gefa bæði lit og ljóma á kinnarnar og kinnbeinin. Annars vegar Light and Berry sem er mattur fjólutónn og bleikfjólutóna perlugljái og hinsvegar Gold and Peach sem er eins og nafnið gefur til kynna ferskjulitaður kinnalitur paraður með gylltum highlighter.
Light and Berry og Gold and Peach kinnalita-og highlighterdúóin frá Chanel.
Nýir augabrúnalitir koma í miklu litaúrvali og eru með mjög mjóum oddi þar sem auðvelt er að líkja eftir einstaka hárum.

Bakvið tjöldin

Hér má sjá nokkrar bakvið tjöldin-myndir frá myndatökunni með Lily-Rose Depp.
Sumarlína Chanel fæst í Hagkaup, Smáralind.

Meira úr fegurð

Fegurð

Förðunar­fræðingurinn okkar mælir með nýjum og spennandi snyrtivörum á Tax Free

Fegurð

Þetta er klippingin sem allar kúl stelpurnar verða með á næstunni

Fegurð

Förðunarfræðingur mælir með frá MAC

Fegurð

Best í brúnku! Nýjar og ljómandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Sjóðheitir sumarilmir

Fegurð

Nýjar og spennandi snyrtivörur á Tax Free

Fegurð

Sumartrendin í förðun og Gosh á 20% afslætti

Fegurð

Bestu snyrtivörurnar á 20-40% afslætti