Línan samanstendur af munum með mynstri sem byggt er á mósaík blómaverkum Mary. Innblástur er sóttur til rómantísku stefnunnar og blóma en um leið eru heiðruð sígild handverk með því að færa þau til nútímans-glæsileg handverk Mary Delany sem unnin voru úr pappír af mikilli vandvirkni. Samstarfslínan er fáanleg í H&M Home í Smáralind og á Hafnartorgi frá 24. september.



Þegar við hófum hönnunarferlið fyrir haustið, vakti breskur tíðarandi 18. aldarinnar áhuga okkar. Listin, rómantíska hreyfingin og fallegu garðarnir. Þegar við kynntum okkur safnskrá breska þjóðminjasafnsins löðuðumst við samstundis að glæsilegum verkum Mary Delany. Öll smáatriði og augljós ástríða fyrir listinni skín af svörtum bakgrunninum. Á sinn dulúðlega og lóðræna hátt eiga verk Mary svo sannarlega enn við í dag og þetta samstarf færir gamla tímann á fallegan hátt inn á hvaða nútímaheimili sem er. -Guillaume Vaillant, hönnuður H&M Home.
Rómantík og dulúð í fyrirrúmi

Blómlegir blómavasar
Breska þjóðminjasafnið var stofnað árið 1753 og var það fyrsta sinnar tegundar í heiminum til að opna fyrir almenningi. Allt frá byrjun var hugsunin sú að safnið væri ætlað öllum heiminum og fyrir alla og sú hugsun er enn við lýði í dag. Með safnmunum sínum segir það sögur mismunandi menningarheima, allt frá upphafi mannkyns fyrir meira en tveimur milljónum ára til dagsins í dag. Þar má finna verkfæri sem unnin voru af mönnum í upphafi mannkynssögunnar og aðrar dýrmætar fornminjar frá Afríku, Eyjaálfu og Ameríku, Mið-Austurlöndum, Asíu og Evrópu en einnig breskar minjar; prent, teikningar, myntir og medalíur.