Fara í efni

Hátískan í París

Tíska - 29. janúar 2025

París er ekki eingöngu borg ljóssins heldur er hún lifandi tískusýningarpallur þar sem elegans og djörf hönnun mætast á götum úti, sérstaklega þegar um hátískuviku er að ræða. Við kíkjum yfir á meginlandið og höldum áfram að fylgjast með þeim best klæddu og kynnum okkur nýjustu strauma og stefnur í tískuheiminum.

„Model Off Duty“

Það er gaman að fylgjast með því hvernig fyrirsæturnar klæðast þegar þær hlaupa á milli tískusýninga.
Pelsar í öllum stærðum og gerðum eru vinsælir hjá tískukrádinu um þessar mundir.
Leðurkápa, pels og næntís-gleraugu. Ekta „model off duty“.
Six Pack-inn fær að njóta sín vel í þessu dressi á Ameliu Gray.
Módelin alltaf tilbúnar fyrir myndavélina!
Ekta „parisian chic“. Svört kápa, smart klipping og rauðar varir.
Dragtarbuxur og leðurjakki í yfirstærð. Lov!
Fagrar fyrirsætur á götum Parísarborgar á tískuviku.
Þessar duttu í genalottóið!

Steldu stílnum

Blazer, gallabuxur og strigaskór koma þér langt.
Blazer, Zara, 13.995 kr.
Gallabuxur úr Weekday í stílnum Rowe.
Gina Tricot, 12.895 kr.
Leðurbomber, Zara, 8.995 kr.
Kaupfélagið, 19.995 kr.
Mathilda, 149.990 kr.
Miu Miu, Optical Studio, 65.900 kr.

Best klæddu

Þessar eru með þetta ákveðna „Je ne sais quoi“.

Klikkuðu kjólarnir

Á hátískuviku má gjarnan sjá mjög íburðamikla kjóla og fylgihluti sem gaman er að skoða.

Chanel

Hér má sjá stílstjörnurnar á leið á hátískusýningu Chanel dressaðar í þessu klassíska, virðulega franska tískuhúsi frá toppi til táar.

Uppáhalds snyrtivörurnar okkar frá Chanel

Rouge Coco Flash er nærandi formúla og blanda á milli varasalva, gloss og varalitar sem er frábær. Liturinn Boy er goðsagnarkenndur og það er ástæða fyrir vinsældunum, hann er hinn fullkomni nude. Fæst í Hagkaup, Smáralind.
Liturinn Boy er hinn fullkomni nude.
Water Fresh Complexion Touch er vatnskennd formúla af milliþekjandi farða sem gefur einstaka og náttúrulega áferð á húðina. Mælum með!
Healthy Glow Bronzing Cream frá Chanel hefur verið gríðarlega vinsæll síðasta áratuginn eða svo og ekki að ástæðulausu. Brilljant kremaður bronser sem gefur húðinni instant lit og ljóma.
Þessi kremaði kinnalitur lætur ekki mikið fyrir sér fara en er uppáhalds snyrtivaran okkar til að fá þennan x-factor, ljóma, lit og frísklega í lok förðunarinnar. Mælum svo mikið með!

Fylgihlutirnir

Chanel taska í formi rútu.
Klassík sem stenst tímans tönn.
Speisuð Chanel-gleraugu.
Dýrmæt Dior.
Gulli skreytt hár.
Sæt gegnsæ Chanel-taska.
Rútutaskan er merkt Los Angeles!

Svipmyndir frá hátískuviku í París

Komdu aftur í heimsókn á HÉRER.is til að fylgjast með tískuvikuumfjöllunum.

Meira úr tísku

Tíska

Götutískan í Köben

Tíska

Kíkt í pokann hjá Sölku Sól

Tíska

Flottustu karlarnir á tískuviku

Tíska

100 hugmyndir að flottu vinnudressi

Tíska

Loksins fær persónulegur og líflegur stíll að njóta sín

Tíska

Stílistinn okkar er með augastað á þessu á útsölu í ZARA

Tíska

Áramóta­dressið 2024

Tíska

Jólafötin á hann